Væri ekki gaman að hafa einn krókódíl á veisluborðinu? Kannski ekki lifandi en sem brauðterta væri það mjög gott.
Setjið salat á milli brauðtertubrauða. Krókódíll er teiknaður upp á smjörpappír og klippur út. Leggið mótið á smurða brauðtertuna og skerið út.
Krókódíllinn er skreyttur með smátt skorinni gúrku og grænni papriku. Augun eru gerð úr eggjum og svörtum ólífum. Klærnar eru skornar út úr gúrku.