Makrónur er eitthvað sem ég hef keypt tilbúið út í búð í pokum og mulið ofan á rjóma eða blandað saman við til að fá gott bragð á milli svamptertubotna. Á heimasíðu bakerellu sá ég síðan skemmtilega hugmynd þar sem notaðar voru heimatilbúnar makrónukökur í hinum ýmsu litum og gómsætt krem á milli.
Það tók sinn tíma að hafa sig í að byrja en loksins lét ég verða af því. Útkoman var nokkuð góð miðað við fyrsta skiptið og ég tala nú ekki um hvað það var skemmtilegt og spennandi að fikra sig áfram með blönduna. Það skemmtilega við kökurnar er að það er hægt að festa þær tvær og tvær saman með kremi eða stinga sleikjópinna á milli. Það er hægt að skreyta makrónukökur á ýmsan hátt með matartússlitum eða kökuskrauti.
Til að áferðin á makrónuskeljunum verði sem fallegust verða eggjahvíturnar sem eru notaðar að hafa staðið í skál við stofuhita í ca. 1-2 sólahringa.
Ef makrónukökurnar eiga að vera í fallegum lit er mikilvægt að nota matarlitaduft en það er það nýjasta í matarlitabransanum hér á landi. Matarlitaduftið inniheldur engan vökva og skemmir því ekki blönduna þegar það er sett út í .
Makrónurnar innihalda einungis 5 hráefni: Eggjahvítur, sykur, flórsykur, möndlur og matarlitaduft ef þess er óskað.
Makrónuskeljar
90 g eggjahvíta ca. 3 eggjahvítur
25 – 50 g sykur
200 g flórsykur
110 g möndlur
1 tsk af matarlitadufti
Undirbúningur:
Möndlurnar og flórsykurinn eru mulin með töfrasprota þar til möndlurnar eru orðnar fínsaxaðar. Að þessu loknu er gott að taka frá stærri bitana og mylja með fingrunum.
Eggjahvíturnar eru þeyttar þar til þær hafa myndað froðu. Sykurinn er settur út í og blandan þeytt þar til hún hefur fengið fallega hvíta glansandi áferð. Munið að þeyta ekki of mikið.
Möndlumulningnum er blandað varlega saman við og hrært í með sleif. Það þarf að passa að hræra ekki of mikið. Matarlitaduftið er sett varlega saman við.
Sprautupoki með breiðum stút er fylltur með blöndunni. Sprautið litla hringi á smjörpappír eða sílikonmottu. Makrónublandan er látin standa á plötunni í 30 mínútur þar til skeljarnar hafa aðeins harðnað.
Bakið við 150 – 160° í 18-20 mínútur (fer allt eftir stærðinni). Látið kólna og setjið fyllingu á milli.
Hugmynd að fylling:
1 ½ bolli rjómasúkkulaðibitar
¾ bolli rjómi
Aðferð:
Rjóminn er hitaður að suðu í potti við meðalhita. Potturinn er tekinn af hellunni og súkkulaðibitunum blandað saman við. Þegar súkkulaðið hefur bráðnað þarf blandan að standa í 2 mínútur.
Hvernig eru þessi hjörtu sett á og með hverju ?