Svo litlar og sætar…
Það er erfitt að standast þessar, alltaf svo fallegt að sjá litlar bollakökur.
Bollakökur á stærð við þessar sjást alltaf meira og meira á veisluborðum en það get ég vel skilið. Það er bæði auðvelt að skreyta þær og síðan eru þær borðaðar í einum eða tveimur munnbitum.
Notaði hágæða bollakökuform sem fást bæði í Hagkaup Skeifunni og í vefverslun.mommur.is, sprautaði kreminu með frönskum stút og súkkulaðikúlu í miðjuna.