Það er fátt betra en að gæða sér á ljúffengu heimabökuðu brauðmeti þegar kemur að kaffitímanum.
Þessi uppskrift kemur mjög vel út.
Uppskrift:
300 ml vatn
325 ml mjólk
21 g þurrger
2 msk sykur
2 msk olía
15 g kúmen
1 egg
25 g salt
1 kg hveiti.
Aðferð:
Volgri mjólk og vatni er hellt í skál ásamt þurrgeri, sykri, kúmeni og olíu. Blöndunni leift að standa í 5 mínútur og þá er eggi og salti blandað saman við. Að lokum er hveitinu hrært saman við þar til deigkúla hefur myndast. Deigið er hnoðað vel og látið lyfta sér í ca. 60 mínútur. Kringlur eða brauðbollur mótaðar úr deiginu, látið hefa sig aftur í 30 mínútur. Síðan eru þær bakaðar í ca. 12 – 15 mínútur við 180 gráða hita
Er í alvörunni svona. mikið salt í uppskrifitinni?