-Færslan er unnin í samstarfi við Garðheima –
Bleikur er mitt uppáhald og nú fyrir jólin þá fannst mér tilvalið að fara á stúfana og leita mér að bleiku jólatré í Mömmueldhúsið. Það var hægara sagt en gert því lítið var um þannig jólatré. Ég fékk ábendingu um að slíkt tré væri að finna í Garðheimum.
Ég skellti mér í heimsókn í búðina og vá, ég kolféll fyrir trénu og stóðst ekki mátið og keypti mér eitt.
Ég er himinlifandi með útkomuna. Finnst mér liturinn mildur og snjóáferðin á enda greinanna koma vel út. Tréð er 210 cm á hæð.
Bleika tréð var ekki það eina sem ég sá en Garðheimar njóta sín svo sannarlega nú fyrir jólin með fallegum vörum vítt og breitt um búðina.
Ég fann virkilega fallegt jólaskraut sem prýðir nú jólatréð í mömmueldhúsinu. Bleikar, hvítar og silfurlitaðar kúlur urðu fyrir valinu.
Heillaðist af þessum bleika aðventukransi en fannst hann passa svo vel í mömmueldhúsið.
Í Garðheimum má einnig finna fallegar vörur fyrir heimilið en mér fannst skemmtilegt að sjá litasamsetninguna í hverri hillu.
Það má með sanni segja að það er sannkallað ævintýri að kíkja í Garðheima en ég hvet ykkur til að upplifa þá góðu stemmningu og fallegu vörur sem þar má versla.