Skoða

Hálfmánar (hnoðað)

Uppskrift:

500 g Kornax hveiti

300 g Smjörlíki

200 g Dan Sukker sykur

2 stk egg

2 tsk lyftiduft

2 tsk hjartasalt

vanilludropar

rabbarbarasulta

Aðferð:

Smjörlíki mulið saman við þurrefnin. Eggi og vanilludropum bætt saman við. Allt hnoðað þar til deigið er slétt og sprungulaust. Gott að geyma deigið yfir nótt í kæli. Deigið er síðan flatt út og mótað með hringmóti. Sulta sett í miðjuna á kökunni og síðan brotið til helminga og brúnunum þrýst  saman með gafli. Bakað við 175° C í 8-10 mínútur.

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Related Posts