4 stk eggjahvítur
200 g sykur
200 g kókosmjöl
100 g súkkulaði
80 g bismarkbrjóstsykur (mulinn)
Aðferð: Eggjahvítur stífþeyttar. Sykri blandað út í og þeytt vel saman. Súkkulaði brytjað og bismarkbrjóstsykur mulinn. Þessu er blandað ásamt kókosmjölinu varlega saman við með sleikju. Sett á bökunarpappír á plötu með teskeið. Bakað við 160°C í 12 – 15 mín. ca. 70 – 80 kökur.