Þessi kaka hefur vakið mikla athygli á heimasíðunni og þykir útfærslan skemmtileg.
Hello Kitty ballerínan heillar hvaða kisustelpu sem er. Kakan er skorin út og smurð með smjökremi. Hvíti sykurmassinn er flattur út og settur yfir kökuna. Bleiki sykurmassinn er einnig flattur út og hann sniðinn til eftir móti. Mótið er síðan skorið út með sykurmassaskera.. Til að gera kjólinn raunverulegri er sett auka pífa neðst á kjólinn. Augun, nefið og slaufan eru sett á kisuna í lokinn. Veiðihárin eru gerð úr lituðum tannstönglum. Það væri síðan hægt að gera kökuna mun glæsilegri með bleiku satíndufti. Blómin á bakkanum eru búin til með blómamótum.
Skef fyrir skref:
Hæ hæ Hvar get ég nálgast sniðið sem þið eruð með af ballerínuni??
Við erum því miður ekki með sniðið af ballerínunni en það var gert útfrá mynd sem við fundum á google.
Vona að þú finnir svipaða mynd.
vá mín 3ja ára alveg heilluð af þessari einnig mamman . 🙂
Gaman að heyra!
Vá litla systir mín gjörsamlega brjálast á því að sjá þetta henni finnst þetta svo flott ;D :Þ
Hæj, hvað skrifaðir þú í google til að myndin af sniðinu kom upp??, því að ég finn ekki myndina sem er alveg eins og sniðið ykkar :/
plattinn undir- er bara filma yfir ?
haha 😀 var í afmælinu þegar þessi var borðuð!! Hún var yndislega góð.