Mér hefur alltaf þótt banabrauð spennandi. Gleymi því ekki þegar ég smakkaði það fyrst, féll fyrir því á sömu stundu.
Þegar ég á banana sem orðnir eru “vel”þroskaðir er tilvalið að skella í brauð.
Ég prófaði þessa uppskrift í dag, það sem er öðruvísi en ég er vön að gera eru súkkulaðidroparnir. Þeir gera brauðið líkara köku.
Uppskrift:
1 1/2 bolli hveiti
1 tsk lyftiduft
1 tsk matarsódi
Salt á hnífsoddi
1/2 tsk kanill
1 msk kakó
1 bolli súkkulaðidropar
120 g ósaltað smjör
1 bolli sykur
2 stór egg
1 tsk vanilludropar
3 bananar
Aðferð:
Hitið ofninn í 180 gráður.
1. Hveiti, lyftiduft, matarsódi, salt, kanill og kakó er sett saman í skál og geymt til hliðar.
2. Súkkulaðidorparnir eru mældir og geymdir í skál, gott að setja ca. 1 msk af hveiti yfir súkkulaðið.
3. Smjörið og sykurinn er þeyttur saman ásamt vanilludropunum. Eggjunum bætt út í, hrært vel á milli eggja.
4. hveiti blöndunni og súkkulaðidropunum er blandað saman við, hrært varlega saman.
5. Deigið er sett í smurt mót og bakað í 1 klst við 180 gráða hita.