Svo töff og fallega kaka. Hentar báðum kynjum og hvaða þema sem er.
Sykurmassinn er flattur út á hringja munsturmottu sem er síðan spreyjaður með perluspreyi. Krossinn á kökuna er búinn til úr munstrinu sem er á kökunni sem er síðan litað með matartússpenna. Kakan er skreytt með stöfum, borða og svörtum blómum með Sixlet kökuskrauti í miðjunni. Skrautið er fest með sykurmassalími.