Brauðterta í fótboltalíki
Brauðtertubrauðið er skorið í mismunandi hringi, settir saman með salati á milli. Brauðtertan er síðan skreytt með soðinni eggjahvítu sem er skorin í litla bita og svörtum ólívum sem eru skornar í litla bita. Einnig hægt að nota dökk vínber og skera þau í litla bita. Það er gott að skera út munstrið á brauðtertuna áður en byrjað er að skreyta.