Gulrótarkaka
1 bolli Dan Sukker sykur
1 bolli Dan Sukker púðursykur
2 egg
1 ½ bolli rifnar gulrætur
½ bolli kurlaður ananas, má sleppa.
1 bolli matarolía
1 tsk vanilludopar
2 bollar hveiti
1 tsk. lyftiduft
½ tsk kanill
Aðferð:
Þeytið sykur og egg saman. Bætið gulrótum, ananas, matarolíu og vanilludropum saman við. Blandið hveiti, lyftidufti og kanil saman í aðra skál. Þurrefnunum er síðan blandað saman við eggjahræruna.
Bakið í 30-40 mínútur við 170 gráða hita.
Gulrótarkrem:
- 400-500 g rjómaostur (gott að taka út úr ísskáp nokkru áður).
- 200 g. flórsykur
- 1-2 tsk vanilludropar.
- 20 g smjör
Aðferð: Hrærið öllu saman í skál. Gætið þess að hræra ekki of lengi því þá getur kremið orðið of lint.
Sæl
er vont að skreyta gulrótaköku með sykurmassa? Verður það vont á bragðið?
Kv. Hanna
Með hverju er þessi skreytt?