1 bolli smjör
1 bolli hnetusmjör
1 bolli Dan Sukker sykur
1 bolli Dan Sukker púðursykur
2 stk egg
4 msk mjólk
2 tsk vanilludropar
3 1/2 bolli Kornax hveiti
2 tsk matarsódi
1 tsk salt
Aðferð:
Smjör, hnetusmjör, sykur og púðursykur hrært saman. Eggin hrærð vel saman við. Restin af hráefninu bætt út í og hrært vel saman. Mótaðar kúlur sem dýft er í sykur. Sett á bökunarpappír á plötu og sykurhliðin látin snúa upp. Bakað við 180°C í 8 mín, þá er kattartunga eða súkkulaðidropi sett á hverja köku og bakað áfram í 3 – 5 mín. C.a. 80-85 kökur.