Einfalt og fljótlegt í veisluna eða klúbbinn. Ekki skemmir fyrir að þetta er hrikalega gott.
Dala hringur er notaður en hann er með tilbúnum hring í miðjunni. Mangó chutney er sett í miðjuna og pecanhnetur þar ofan á. Osturinn er hitaður í ofni á eldföstuíláti í ca. 12. mínútur. Borið fram með vínberjum og saltkexi.