Þessar gömlu góðu uppskriftir klikka sjaldan. Fjölskyldan mín veit fátt betra en að gæða sér á kökum eins og maramaraköku.
Ákvað að poppa aðeins upp á hana og bæta marsbitum saman við deigið. Kom virkilega vel út.
Uppskrift:
240 g sykur
125 g smjör
3 egg
1 1/4 dl rjómi
250 g hveiti
1 tsk lyftiduft
2 tsk vanilludropar
2 marsstykki – brytjuð smátt
1 – 1 1/2 msk kakó – sett í hluta af deiginu (notað til að búa til munstur)
Karamellusósu hellt yfir
Aðferð:
Smjör og sykur þeytt vel saman, þar til ljóst og létt. Eggjunum bætt saman við, eitt í senn, hrært vel á milli. Hveiti, lyftidufti ásamt rjóma og vanilludropum blandað saman við. Marsbitarnir settir saman við deigið.
Takið frá 1/3 af deiginu og blandað kakói saman við. Dökka deigið er notað til að búa til munstur.
1/3 af deiginu er sett í smurt hringlaga mót. Síðan er dökka deigið sett ofan á og að lokum restin af hvíta deiginu þar yfir. Til að fá munstur er hrært aðeins í miðjunni með gaffli.
Kakan er bökuð í 40 – 50 mínútur við 170 gráða hita.
Hvernig karamellusósu er hellt yfir ?