Pítsasnúðar hitta alltaf í mark við hvaða tilefni sem er
Þar sem aðstoðarbakari mömmur.is vildi ólmur fá að taka þátt í bakstrinum þá var ákvaðið að draga fram Stóru köku og brauðbók Disney og velja hentuga uppskrift fyrir yngri kynslóðina.
(myndin er fengin af vefsíðunni: edda.is )
Í bókinni er fullt af girnilegum uppskriftum sem ég mæli með að fólk prófi sig áfram með og skemmtilegast er að hafa krakkana með í ferlinu.
Æðisleg uppskrift sem allir ættu að geta framkvæmt:
Pítsusnúðar Grænjaxlanna varð fyrir valinu (bættum þó Oregano við hana)
Hráefni:
1/2 l mjólk
100 g smjör
1 msk þurrger
60 g sykur
800 g hveiti
1 msk salt
1/2 tsk oregano (Pottagaldrar í uppáhaldi)
Aðferð:
Hitið saman mjólk og smjör þar til það nær um 37 gráða hita. Hellið í stóra skál og sáldrið gerinu út í. Blandan látin bíða í smá stund. Oregano er sáldrað yfir vökvann og síðan er öllu öðru hráefni bætt saman við og blandan hnoðuð vel. Deigið er sett í skál og látið lyfta sér í ca. 40 mínútur. Þegar deigið hefur tvöfaldast er það tekið úr skálinni, flatt út og fyllingin sett á deigið. Snúðarnir eru látnir lyfta sér í 30 mínútur en síðan bakaðir í ca. 20 mínútur við 200 gráða hita.
Fylling: (hver og einn velur það sem hann vill hafa á sínum snúðum)
Pítsasósa
Skinka
Ostur
Spennandi verkefni framundan. Mjólkin og smjörið hitað og þurrefnin gerð tilbúin.
Best að fara með skálina á hlýjan og góðan stað…
Deigið búið að lyfta sér vel