Hefur þú komið inn í Quality Street dós? Það hef ég 🙂
Það er ýmislegt brallað í vinnunni minni. Á hverju ári er haldin skemmtileg kaffistofukeppni sem gengur út á að hvert stig skólans skreytir sína kaffistofu í ákveðnu þema sem minnir á jólin.
Á ár ákváðum við sem vinnum á unglingastigi að skreyta okkar stofu eins og Quality Street dós og síðan vorum við prúðbúin eins og molarnir. Brillant hugmynd sem heppnaðist vel.
Langaði til að sýna ykkur þessa snilld en mikill tími og vinna fer í skreytingarnar, ég tala nú ekki um hugmyndaflug starfsfólk sem svífur þarna um.
Þetta er frábær hugmynd sem vel er hægt að yfirfæra á jólaboðin eða skemmtilegar þemaveislur – hverjum langar annars ekki til að vera uppáhaldsmoli einhvers?
Hér má sjá ganginn – gæðagötu og þarna glittir í fjólubláudósina.
Þá er að gægjast inn og líta dýrðina augum. Dósin er auðvitað klædd áli og svo bíða molarnir eftir því að einhver velji þá.
Dósunum var raðað upp eins og jólatré – smart svona fjólublátt
Bleiki molinn var í kökulíki – besti molinn
Molar út um allt – hvað annað – þeir komu meira að segja út úr krananum
Þarna glittir í Fjölskyldununa en þetta eru við starfsfólkið í búningum.
Bleiki molinn með bleika molann – nammi namm.
Gæðagata eins og hún leggur sig. Hér fyrir neðan koma svo molarnir
a