Brauðterta.
Þessi er einföld og klikkar aldrei!
Fer oft í bakarí og læt þá skera samlokabrauð fyrir mig. Einnig hægt að kaupa frosið rúllutertubrauð út í búð.
Skinku brauðterta
- 1 brauðtertubrauð
- 5 soðin egg
- 1 skinkubréf
- Majones sett þannig að salatið verði blautt.
- 1-2 msk tómatsósa
Aðferð:
Eggin soðin, kæld og skorin í eggjaskera.
Skinkan skorin í litla bita. Þessu er hrært saman í skál ásamt majonesi. Tómatsósan er sett í lokin til að bragðbæta. Öllu hrært vel saman og síðan sett á brauðtertubrauðið.