Einfalt og svo gott að það er erfitt að hætta. Þegar búið er smyrja rjómaostablöndunni á milli tortillakakanna þá eru nótur og stjörnur mótaðar. Þessu er síðan raðað á diskamottu sem er með svörtum röndum líkt og nótnalínur.
Smyrjið tortillakökur með rjómaostablöndunni. Gott að hafa 3-4 lög af kökum. Skerið kökurnar með hníf eða formum.
Rjómaostablanda
Rjómaostur
Púrrulaukur
skinka
Rifinn ostur
Púrrulaukssúpuduft (eftir smekk)