Mér finnst alltaf koma jafn vel út að smyrja tortillakökur, setja skinku, kál, ost og annað góðgæti á milli. Kökurnar eru síðan rúllaðar upp og skornar í litla bita. Vel hægt að gera þetta daginn fyrir veisluna.
Hugmynd 1:
Rjómaostur, púrrulaukur, ostur og skinka – brytjað smátt og hrært saman.
Hugmynd 2:
Salsasósa, sýrður rjómi, rifinn ostur, kál og doritos
Hugmynd 3: Voga ídýfa með kryddblöndu, skinka, ostur og hvítlauksblanda (krydd frá pottagöldrum)
hvað er t.d í þessu?
með appelsínugula í ?
uppskrift takk