Æðisleg uppskrift sem bragðast svo vel og hentar mjög vel tli að skreyta
Uppskrift fyrir ca. 22 bollakökur
235 g hveiti
2 tsk lyftiduft
125 g ósaltað smjör eða 1 dl olía
1/2 tsk salt
250 g sykur
1 tsk vanilludropar
2 stk egg (við stofuhita)
180 ml mjólk við stofuhita
Aðferð:
Ofninn hitaður í 175°
1. Hveiti, lyftiduft og salt sett í skál og sett til hliðar.
2. Smjör, sykur og vanilludropar sett í hrærivélaskál og hrært á meðalhraða í 3 mín. eða þar til deigið er létt og ljóst.
3. Egg sett út í, eitt og eitt í einu og hrært vel á milli. Hveitiblandan sett varlega saman við deigið og að lokum mjólkin. Blandið vel en varlega saman.
4. Fyllið bréfformin c.a ½ ef kakan á að vera slétt við brún og ¾ ef það á að fara upp fyrir brún á mótinu. Bréfformin sett í bökunarmót svo kökurnar haldi sér betur.
5. Bakað í 17 – 20 mín. (Undir og yfirhiti).
6. Látið kólna í bökunarmótinu í 5 mín og taka þau síðan úr og látið kólna áfram á bakka.
Hæ hæ ég er með vikublaðið í höndunum og ætlaði að fara að baka regnbogabollakökurnar á bls 13 með vanilluuppskriftargrunninum á bls 4 og þar stendur að það sé 1 bolli af vanillusykri er á móti 2 bollum af hveiti ?
Er það ekki svolítið gróft eða ?
Sæl
Þarna er villa á ferðinni. 1 – 1 1/2 tsk af vanilludropum ættu að duga 🙂 Annars er fín uppskrift hér :http://mommur.is/?p=6095
Gangi þér vel.
Hvað koma margar kökur úr þessari uppskrift ?
mmm þetta eru dúndur góðar kökur. 🙂
Hæhæ þarf maður að nota dansukker sykur má maður ekki nota venjulegan sykur :)?
Sælar, Það er auðvitað val hvers og eins hvaða sykur hann notar. Við notum alltaf Dan Sukker en okkur finnst hann bestur. Sumir geta verið svo grófir.
okey takk takk
🙂
girno nammi :-p
girnó nammi :-p
girnó
Hæ … þessar kökur eru mjög indælar …… lalalalalala singing a song!
hvað koma margar kökur úr þessari uppskrift ?
Ca. 22 kökur
á maður að bræða smjörið??
Sæl! get ég ekki notað þessa uppskirft til þess að búa til regnboga cupcakes?
hæhæh hvernig krem á maður að nota við þetta ?
hæhæ, er hægt að sleppa eggjum og setja súrmjólk í staðinn, ef já hvað á þá að setja mikið af súrmjólk í staðinn ?