Það er ýmislegt hægt að gera við vöfflujárnið en að baka hefðbundanar Vöfflur.
Hér erum við búnar að gera vöfflukex, stökkt og gott kex með súkkulaðibragði. Algjör snilld þegar mann langar í eitthvað sætt.
Uppskrift:
75 g súkkulaði
125 g smjðr
175 g sykur
100 g hveiti
2 msk kakó
1/4 tsk lyftiduft
2 stk egg
1/4 tsk salt
1/2 tsk kanill
1 tsk vanilludropar
Súkkulaðibráð ofan á:
6 msk smjör
120 g flórsykur
6 tsk kakó
4 msk rjómi
Aðferð (súkkulaðibráð)
Allt sett í pott og hitað saman í smá stund og smurt með pennsli yfir kexið.
Aðferð:
Smjör og súkkulaði brætt saman við vægan hita og kælt smá stun. Restin sett í skál og smjörsúkkulaðiblöndunni bætt út í og hrært vel saman. Vöfflujárnið hitað og gott að spreyja með olíuspreyi. Deigið sett með teskeið í hvert lauf þar sem það er breiðast. Betra að hafa ekki of mikið í hverju laufi þannig að það renni ekki saman. Bakað í c.a. 1 1/2 mínútu. Passa samt upp á að það brenni ekki. Vöfflujárnin geta verið misjafnlega öflug.
Súkkulaðibráðin smurð með pennsli á vöfflukexið. Best að bera það fram fljótlega eftir bakstur með ískaldri mjólk.