Ólympíuafmæli er eitt af því skemmtilega sem við höfum undirbúið. Það þurfti köku í stíl og var þessi kaka hönnuð í tilefni þess.
Grunnurinn að kökunni er í raun einföld þó skrautið og þó aðallega fígúrurnar séu aðeins flóknari í gerð.
Hráefni:
Súkkulaðikaka
Smjörkrem
Sykurmassi
Fígúrumassi
Matartússpenni
Snjókornaduft
Áhöld sem voru notuð
Sykurmassamotta
Kökukefli
Hringjamót
Andlitssílikonmót
Vinnuplatti
Sykurmassi er búinn til, setti extra hvítan gelmatarlit til gera hann hvítari
Hringirnir eru búnir til með hringjamótum úr tilbúnum fígúrumassa.
Verðnaunasætið er gert með því að skera hvítan sykurmassa þannig að úr verði þessi lögum. Þetta er síðan hjúpað með sykurmassa.
Tölustafirnir eru gerðir með skrautskriftarmótum.
Verðlaunapeningarnir eru gerðir með hvítum gum paste sem er skorinn með hringjamóti.
Litlu Ólympíuhringirnir og tölustafirnir eru gerðir með litlum tappa.
Brons, silfur og gulláferð fæst með perluduftum í sömu litum.
Mér finnst ótrúlega gaman að gera fígúrur þar sem þær reyna á aðra færni en þegar maður gerir hefðbundna köku.
Um að gera að æfa sig og prófa eitthvað nýtt, engin fígúra þarf að vera nákvæmlega eins.
Fígúrumassinn sem kemur tilbúinn í 200 g pokum hentar sérstaklega vel til að gera fígúrur. Hann fæst í flestum litum.