Dásamlegt að eiga þessa einföldu skyrtertu í frystinum – klikkar ekki.
Uppskrift:
Botninn:
1 pk pólókex
10 stk æðibitar
100 g smjör
1 msk sykur
Fylling:
1 stór dós jarðarberjaskyr
1/2 l rjómi 2 msk súkkulaðibúðingaduft (má sleppa)
100 g Milka oreo súkkulaði – mulið
Skraut:
Bláberjasulta Rifið súkkulaði
Aðferð: 1. Pólókex og æðibitarnir eru muldir í matvinnsluvél. 2. Bráðið smjör blandað saman við ásamt sykri. Blandan er sett í botninn á eldföstu móti og bakað í ca. 10 mínútur við 175°gráða hita. 3. Rjóminn er þeyttur, skyrinu blandað varlega saman við. Muldu oreosúkkulaði hrært saman við ásamt súkkulaðibúðingadufti. 4. Tertan er skreytt með bláberjasultu og rifnu súkkulaði. 5. Tertan er kæld og borin fram köld.