*Uppskrift fyrir 3 hringlaga botna ca. 24 cm
150 g 70% súkkulaði
125 ml vatn, sjóðandi heitt
1 tsk matarsódi
225 g smjör, lint
200 g sykur
200 g púðursykur
5 stk egg
400 g hveiti
150 ml súrmjólk
100 g majónes
3 tsk vanilludropar
Bingókúlukrem:
150 g bingókúlur
100 g súkkulaði
1/2-1 dl rjómi
Smjörkrem:
500 g smjör
400 g flórsykur
2 msk kakó
1 stk eggjarauða
1 tsk vanilludropar
1 msk síróp
100 g súkkulaði brætt
Aðferð:
- Súkkulaðið er brætt yfir vatnsbaði. Matarsódinn er leystur upp í sjóðandi vatni og síðan hrært saman við súkkulaðið.
- Smjör og sykur er hrært saman þar til létt og ljóst. Eggjunum hrært saman við, einu í senn. Passa að hræra vel á milli.
- Hveiti, súrmjólk og majónes er sett saman við. Gott að gera hveiti og súrmjólk til skiptis í skálina og hræra á milli.
- Súkkulaðiblöndunni er hrært saman við ásamt vanilludropunum.
- Deiginu er skipt í þrjá jafna hluta og sett í smurð bökunarmót. Botnarnir eru bakaðir við 180 gráður í um 30 mínútur.
- Þegar botnarnir eru bakaðir eru þeir settir á grind þar til þeir kólna.
- Bingókúlukremið er gert með því að bræða bingókúlur og súkkulaði í rjómanum. Hrært vel saman.
- Smjörkremið er gert með því að þeyta smjöri,flórsykri, eggjarauðu, vanilludropum og sírópi saman og að lokum hella bræddu súkkulaði saman við.
Samsetning:
- Kökubotn er settur á kökudisk og smjökremi smurt á hann. Bingókúlukremi er hellt yfir kremið.
- Kökubotn númer 2 er settur yfir og smjökremi smurt yfir hann og bingókúlukremi er hellt yfir.
- Efsti kökubotninn er settur yfir. Smjörkremi er smurt yfir alla kökuna og bingókúlukremi hellt yfir.
- Kakan er skreytt með Nóa Kroppi og jarðarberi. Jarðarberið er skorið eins og rós.
* Uppskriftin að súkkulaðikökubotnunum er unnin út frá upppskrift að djöflaköku í bók Nönnu Rögnvaldsdóttur; Matreiðslubók Nönnu.