Ég skrapp í berjamó um daginn í yndislegu veðri, ætli það hafi ekki verið lognið á undan storminum. Kíkti í Skorradalinn góða og átti þar góða stund í náttúrunni ásamt fjölskyldunni. Fannst berjatíðin ekki eins góð og í fyrra en náði þó að handtýna nokkur aðalbláber.
Það er alltaf jafn yndislegt í Skorradalnum hvort sem maður er að koma eða fara.
Bláberjakaka
240 g smjör linað
200 g sykur eða Xylo Sweet
250 g hveiti
2 1/2 tsk lyftiduft
1/2 tsk salt
1/2 tsk vanilludropar
1 dós jarðaberjajógurt
2 bollar bláber
Aðferð:
Smjör og sykur hrært þar til það er ljóst og létt. Eggum bætt út í og þetta hrært vel saman. Þurrefni ásamt vanilludropum og jarðaberjajógúrti blandað saman við og hrært vel saman. Að lolum eru bláberin sett út í og hrærð varlega saman við deigið. Sett í eitt stórt form eða tvö ca 22 cm form. Þá er blandan sem fer ofan á smurð yfir og kókosmjölið þar yfir. Líka gott að setja bláber og bláberjasósu yfir og síðan bakað við 175°C í 35 – 45 mín.
Ofan á aðferð:
Öllu blandað saman og sett yfir deigið og skreytt með kókosmjöli eða sykri.
Honum Grímari Degi frænda mínum fannst sko ekki leiðinlegt í berjamó.
Myndin hér að neðan sýnir hvernig kakan lítur út þegar blandan sem fer ofna á er smurð yfir.