Það er alltaf fallegt að bera fram köku með blómum. Hjörtu setja skemmtilegan svip á kökuna.
Hringlaga súkkulaðikaka er skorin í tvennt og smjörkrem sett á milli og utan um kökuna. Sykurmassi er flattur út og settur yfir kökuna. Kakan er skreytt með blómum og hjörtum. Borðinn í kringum kökuna er búinn til með munsturskera.