Þetta piparkökuhús er gert og hannað árið 2000 af Valdísi Einarsdóttur og er fyrsta húsið af mörgum sem hún hannaði á annan hátt en þessi hefðbundnu sem skreytt eru með sælgæti og kökuskrauti.
Hugmyndina að húsinu fékk hún í bók sem séra Jón prestur á Akranesi skrifaði. Hún setti hugmyndina saman og úr varð þessi fallegi burstabær. Piparkökuhúsið lítur vel út svo vel að margi héldu að ekki væri um piparkökuhús að ræða heldur spýtuhús. Húsið er nú búið að standa í 11 ár og myndirnar teknar í því ástandi sem það er í dag.
Húsin eru öll fest saman með kóngabráð.
Sérstök hleðsla er á milli húsanna svokölluð klumburhleðsla. Klæðningin á húsinu, munstið, gluggar og hurð er allt gert úr piparkökulengjum sem eru festar á heilar piparkökuplötur.
Gluggapóstarnir og þakkanturinn er gert úr örþunnum piparkökulengjum sem erum litaðar með kóngabráð.
Fyrir aftan húsið sést í Snæfellsjökulinn.