Nú er það loksins komið út. Ég ekkert lítið búin að bíða eftir að að skoða kökublað Vikunnar. Árleg hefð sem ég hef ekki misst af í svo mörg ár. Það er svo gaman að sjá nýjar hugmyndir og prófa, geymi síðan blaðið og nota aftur og aftur.
Kökublaðið í ár er sérlega veglegt, fullt af flottum hugmyndum sem gaman verður að prófa.
Við hjá mömmur.is erum með 6 blaðsíður, fullar af hinum ýmsu kökum og góðgæti. Erum virkilega ánægðar með útkomuna í ár.