Það er fátt meira freistandi á aðventunni en gómsætar sörur. Hér eru þær í öllu sínu veldi, gómsætar eins og að vaninn er og með bragðgóðu dumlekremi.
Ekki fallast hendur, þetta er ekki eins erfitt og margir ímynda sér.
Uppskrift:
3 stk eggjahvítur
200 g flórsykur
200 g möndlur (muldar í matvinnsluvél)
Aðferð:
Eggjahvíturnar eru stífþeyttar, þar til hægt er að halda skálinni á hvolfi án þess að eggjahvíturnar fari úr henni.
Flórsykrinum er blandað varlega saman við með sleikju eða sleif ásamt möndlunum.
Deigið er sett á bökunarpappír með skeið eða sprautupoka. Gott að miða við 1/2 -1 tsk.
Bakað í um 10 mínútur við 175°C hita (blástur). Leyft að kólna á t.d. grind.
Krem:
3 eggjarauður
10 stk dumlekaramellur
1 dl rjómi
3-4 msk síróp
200 g smjör (linað)
Aðferð:
Dumlekaramellur og rjómi er hitað saman, kælt.
Eggjarauðurnar eru þeyttar vel, sírópinu blandað saman við ásamt smjöri og dumlerjómanum.
Hrært vel saman og sett í sprautupoka. Einnig hægt að nota skeið þegar kökurnar eru smurðar.
Hjúpur:
200 g rjómasúkkulaði og 100 g suðusúkkulaði.
Hitað við miðlungshita þar til allt er bráðnað.
Kremið og hjúpurinn sett á kökurnar:
Kremið er sprautað á hverja köku, sléttað úr því með t.d. hnífi. Kökurnar eru síðan kældar með súkkulaðið sem á að hjúpa með er brætt.
Hver kaka er síðan hjúpuð með súkkulaði.
Geymt í fyrsti.
https://www.youtube.com/watch?v=BqmQyK-JwPE&feature=youtu.be