Kaka sem líkist trommum býður upp á marga möguleika.
Í þessu tilfelli var hugmyndin að búa til þrjár tegundir af köku úr einni hugmynd. Súkkulaðikaka, marengskaka og svampterta. Þetta heppnaðist nokkuð vel þrátt fyrir að marengsbotninn hafi aðeins sígið yfir nóttina. Við mælum með að trommusettið sé gert úr súkkulaðikökubotni því þannig heldur kakan sér best.
Súkkulaðikaka
Fylling: Smjörkrem
Svampterta
Fylling: Rjómi með jarðarberjabagði
Marengsterta
Rjómi með marsfyllingu.
Sykurmassi: Blár (1) Hvítur (1): brúnirnar eru litaðar með silfurlituðu dufti.