Þetta piparkökuhús er gert og hannað árið 2002 af Valdísi Einarsdóttur húsið er tileinkað Ólafi Inga langömmubarninu hennar.
Þetta hús hlaut fyrstu verðlaun í piparkökuhúsaleik Kötlu árið 2002.
Tekið skal fram að myndirnar eru teknar í því ástandi sem húsið er í dag en það er nú orðið 9 ára gamalt.
Hugmyndina sá hún í blaði en breytti hugmyndinni mjög mikið. Barnabörnin hennar Eydís og Jensína standa til hliðar og einnig Matti og Mikael annarstaðar.
Í þessu piparkökuhúsi má sjá Bakarí og bænarhús til hliðar. Innanhúsmunir eru mjög nákvæmir og má til dæmis sjá málverk á einum veggnum en það er búið til úr sykurmassa. Inni í bakaríinu má sjá kransaköku og piparkökuhús, brauð, vínarbrauð og mikið af því bakkelsi sem fæst í bakaríum í dag.
Handriðin eru gerð úr súkkulaði, reyndar náði sólin að skína eitt sinn á þau svo einhver hluti þeirra bráðnaði .
Grýlukertin eru gerð úr kóngabráð.
Húsið er fest saman með kóngabráð.
Jólatré úr piparkökukramarhúsi sem er skreytt með kremi.
Jólasveinarnir eru gerðir úr sykurmassa ásamt öðrum fígúrum hjá húsinu.