Skoða

Jólabakstur

Það er alltaf gaman að fá gestabakara í mömmueldhúsið. Þessar snúllur eru oftar en ekki þátttakendur þegar bakstur er annars vegar.

Um þessar mundir eru margir að undirbúa jólin og þá kemur baksturinn sterkt inn. Alveg er ég viss um að mörg börnin fá að taka þátt!

Á þessari stundu vorum við að gera piparkökur en þeim fannst ótrúlega spennandi að fylgjast með.

Oft þarf ekki meira en samverustund  t.d. með því að baka saman, til að gleðja lítil hjörtu!

Átt þú lítinn bakara?

1 comment
  1. þetta er það sem jólin eru klárlega 🙂 ég á einmitt 2 litla bakara elska að skera út piparkökur og svona dúllerí

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Related Posts