Á mínu heimili eru miklir legoaðdáendur. Það var því mikil gleði þegar þessi kaka varð gerð. Hér er skúffukaka notuð, skorin út eins og legokarl.
Smjörkrem er sett á milli og utan um kökuna og að lokum er hún skreytt með sykurmassa.
Súkkulaðikaka sem hentar vel – hér er uppskriftin
Smjörkrem sem hentar vel – hér er uppskriftin
Hægt að gera sinn eiginn sykurmassa – leiðbeiningar á þessu myndbandi:
Skref fyrir skref:
Syni mínum fannst tilvalið að skella angry bird merki á peysuna – kemur bara vel út.
Hendurnar eru gerðar úr sykurmassa – fínt að setja smá tyloseduft til að herða massann.
Hægt að leika sér með liti og breyta karlinum eins og hentar.