Þessi Pavlova er virkilega góð – gaman að prófa sig áfram með botninn og t.d. setja kakó og súkkulaði í hann eins og gert var í þetta skiptið.
Uppskrift:
6 eggjahvítur
1 tsp cream of tartar
330 g sykur
40 g kakó
1 1/2 tsk lyftiduft
50 g mjókursúkkulaði
Fylling:
3/4 líter þeyttur rjómi
100 g appelsínu mjólkursúkkulaði
30-50 vínber
30 súkkulaðirúsínur
Kókosflögur eftir smekk
Aðferð:
Eggjahvíturnar eru þeyttar ásamt cream oft tartar, sykrinum blandað smátt og smátt saman við þar til blandan er orðin stífþeytt.
Kakó, lyftiduft og brytjað mjólkursúkkulaði bætt varlega út í blönduna.
Blandan er sett á bökunarpappír og bökuð við 120 gráða hita í ca. 1 1/2 klst.
Rjómafyllingin ásamt brytjuðu appelsínusúkkulaði er síðan sett yfir kökuna, vínberin, súkkulaðirúsínurnar og kókósflögurnar settar yfir rjómann.
Hlakka mikið til að prófa þessar spennandi tertur sem mér líst sérlega vel á