Kung fu panda er mesta krútt í heimi.
Reynt var að draga einkenni hans fram með því að hleypa kökunni upp. Upphækkunin var því sett á magann , hendurnar, kinnarnar og nefið. Þannig varð pandan líka raunverulegri. Erfiðast er að búa til svarta litinn í sykurmassanum en með því að bæta kakódufti í blönduna er auðveldara að ná dökka litnum. Til að fá mýkri línur hjá höndum og fingrum var sykurmassi settur undir loka lagið af sykurmassanum.
2 ofnskúffur af súkkulaðiköku voru notaðar í þessa hugmynd. Pandan er teiknuð upp á smjörpappír og kakan skorin eftir mótinun. Kakan er skorin í tvennt og smjörkrem sett á milli. Ef ætlunin er að hækka upp ákveðna hluta af kökunni þarf að nota afgangs kökubúta. Þegar þeir eru komnir er smjökremi smurt yfir kökuna. Hvítur sykurmassi er flattur út og settur á þá staði sem þarf, síðan svarti og síðan koll af kolli eins og myndirnar sína.
Skref fyrir skref:
Þetta er flottasta kaka sem ég hef séð 🙂
Sælar,
Flott kaka !!!
En hvað kostar að panta svona köku fyrir 20 manns?
Kv..
Komdu sæl
Við erum ekki að taka að okkur að baka. Væri ekki sniðugt að prófa og sjá hver útkoman verður 🙂
Þetta er snild 😀 en hvapð er þetta sem er þið setjið yfir kökurnar stundum ? ( svona sem er eins og dúkur sem ferir yfir alla kökuna ) ;* ;* ;*
sykurmassi