Stórir stútar eru leyndarmálið að fallega skreyttum bollakökum.
Lokaður stjörnustútur eins og 2 D frá wilton kemur mjög vel út, bæði hægt að gera fallega rós með kreminu og einnig fallegan kremturn. Einnota eða fjölnota pokar henta vel með þessum stút ásamt stórum stjörnustútahaldara.
Mér finnst rósarmunstrið á bollakökum alltaf jafn smart og gaman að leika sér að gera lítil sykurmassablóm á endan á rósinni. Æðislegt í fínar veislur.
Rákirnar í turninum verða breiðar og fallegar og rósin kemur einstaklega fallega út með þessum stút, 2D frá Wilton og 1M frá Wilton kemur svipað út.
eins og rós . flot
flott kaka 🙂 en ertu með uppskriftina fyrir kökuna og kemið? <3
hæ,hæ ég heiti guðbjörg og er að laeita að hvar ég gæti keft svona stút???
Sælar, hér er hægt að kaupa stútinn: http://vefverslun.mommur.is/details/wilton-2d-stj%C3%B6rnust%C3%BAtur
Notaði þennan stút þegar ég gerði rósir á bollakökur í brúðkaupi dóttur minnar. Stráði síðan glimmer yfir það kom alveg guðdómlega fallega út.
Ég nota eingöngu vörur frá Wilton.