Skoða

Skírnarterta

Skírnartertur eiga að ljóma af hreinleika og fegurð en fátt er yndislegra en skírn barns.

Skírnartertur eru oftar en ekki hafðar  í ljósum og fallegum litum og verða  blár og bleikur þá oft fyrir  valinu. Kaka í laginu eins og koddi hefur löngum þótt falleg skírnarkaka en hana er auðvelt að móta.

Það er um að gera að prófa sig áfram í skeytingunum og finna það sem hentar best.

Hér má sjá ferkantaða rjómatertu sem er skreytt fyrir stelpuskírn. Það má vel útfæra hana í strákalitum. Tveir svampbotnar eru notaðir í þessa hugmynd. Jarðarberja rjómafylling er sett á milli ásamt blönduðum ávöxtum. Þá er ávaxtasafi settur yfir neðsta botninn, jarðarberjarjómi settur yfir það og síðan venjulegur rjómi með makkarónumulningi yfir hann. Svampbotn er settur efst og rjómi þar yfir og utan um. Kakan er síðan skreytt með bleikum sykurmassa (3/4). Litla barnið er búið til úr andlitslituðum sykurmassa. Tvær misstórar kúlur myndaðar og augu, nef, eyru og munnur sett á. Sykurmassaáhöld koma sér vel við gerð þannig fígúra. Hárið er búið til með hárpressu. Teppið er búið til með því að skera út ferhyrning og munsturmotta sett yfir til að búa til munstrið. Hvítir sykurmassarenningar eru búnir til með sykurmassabyssu og settir á teppið. Teningarnir eru búnir til með hvítum sykurmassa sem skreyttir eru með litlum formum. Sum formin eru skorin út með fíngerðum sykurmassaskera. Kakan er skreytt með fiðrildum, fótsporum, blómum og stöfum.

6 comments
  1. Ég er alveg hugfangin að horfa á allar þessar tertur og allar frábæru hugmyndirnar sem þið reiðið fram. Ég er einmitt að fara að skíra prinsessuna mína í september! Takk!

  2. Hæhæ hvað kostar svona terta er nefnilega að fara skíra prinsessuna 4 sept ..
    og eg væri til i svona tertu hvað er hún fyrir sirka marga ? 🙂

  3. Hæ… gætur thu gefid nákvæmari uppskrift… hlutföll og fyrir hvad marga thu áætlar

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Related Posts