Skoða

Kóngabráð

Kaka

Kóngabráð er notuð til að hylja og skreyta kökur. Kóngabráð harðnar fljótt og hentar því vel til að búa til ýmsar gerðir af svokölluðum sykurblómum.

Uppskrift með eggjum:

2 eggjahvítur

2 tsk sítrónusafi

2 tsk cream of tartar

330 g  flórsykur

Aðferð:

Eggjahvíturnar eru þeyttar ásamt sítrónusafanum.  Flórsykrinum og cream of tartar er bætt við og hrært áfram. Það þarf að nota kóngabráðina um leið þar sem hún harðnar fljótt. Annars þarf að setja hana í loftþétt ílát. Það er mjög gott að setja plastfilmu yfir ílátið sem kóngabráðin er í  þegar unnið er með hana.

Uppskrift með eggjahvítudufti:

Eggjahvítuduft hefur fengist í verslunum hér á landi.

3 msk eggjahvítuduft (Meringue powder)

500 g flórsykur

6 msk vatn

½ tsk sítrónusafi

Aðferð:

Blandið vatni, sítrónusafa og eggjahvítuduftinu  saman og þeytið vel saman.  Sigtið flórsykurinn og þeytið áfram þar til blandan er orðin nokkuð stíf.

Lita kóngabráð:

Þar sem kóngabráðin er hvít er hún oft lituð með matarlit.  Það þykir best að nota gel matarliti.

2 comments
  1. hvar fær maður cream of tartar
    er eithvað annað sem maður getur notað í staðin

  2. Cream of tartar fæst í mörgum matvöruverslunum. Það er líka hægt að sleppa því. Kóngabráðin er alveg jafngóð þannig.

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Related Posts