Ávaxtakaka
200 gr Odense marsipan (Ren Rå Marsipan, (rautt 60%))
160 gr sykur
2 stk egg
80 gr hveiti
30 gr vanillusykur
Aðferð: Marsipan rifið, sykur settur saman við og hrært vel saman. Eggin sett út í og hrært vel saman. Hveitð sett út í og blandað vel saman. Sett í form, ávextir og vanillusykur settir yfir deigið. Notið ávexti eftir smekk.
Ávaxtatillögur:
T.d. 4 stk epli skorin í skífur.
T.d. 90 gr brómber, 30 gr sólber og 30 gr rifsber.
T.d. c.a. 5 stk rabbarbarar skornir í 1!/2 cm sneiðar.
T.d. 150 gr bláber.
T.d. 150 gr jarðaber.
T.d. 75 gr bláber og 75 gr jarðaber.
eða láta hugmyndaflugið ráða.
Á ekki að vera lyftiduft í uppskriftinni? kv. Eva
Á hvaða hita og hve lengi á að baka kökuna? mig langar svo að prófa þessa uppskrift:) kv. Eva