Gott pítsadeig, brauðstangaolía frá IKEA og ostur er eina sem þarf í þessa uppskrift. Bestu brauðstangir sem ég hef smakka og hef ég nú smakkað þær margar.
Ef þú gerir deigið sjálf/ur þá er þessi uppskrift æðisleg:
625 ml volgt vatn
30 g pressuger eða 21 g þurrgerger ( ég nota pressuger sem ég kaupi eftir vigt í næsta bakaríi)
2 msk sykur eða hunang
20 – 30 g salt
1 kg hveiti
Aðferð:
Vatn, ger og sykur sett saman í skál. Saltið sett saman við ásamt hveitinu. Hrært saman og síðan hnoðað. Látið lyfta sér í ca. 1 klst eða þar til deigið hefur tvöfaldað sig. Mótið brauðstangir eins og sýnt er á myndum og látið þær lyfta sér í ca. 10-15 mínútur. . Bakað í ca. 12-15 mínútur við 200° C
Deigið er flatt út og brauðstangasósan smurð á það
Ostsneiðar látnar þekja deigið
Hver brún brotin að miðju
Sett á plötu með bökunarpappír á og skorið í hæfilegar lengjur, þó ekki alla leið
Brauðstangaolían smurð yfir
Látnar lyfta sér í 15 mínútur
Gott að bera fram með pítsasósu frá Hunts eða kaupa tilbúna brauðstangasósu á Pítsastað.
Eitt af uppáhaldi mínu!!!
Mjög girnilegt og ég á örugglega eftir að baka svona. En ertu með uppskriftina af brauðstangarolíunni ? Frábær síða hjá ykkur 🙂
Vilborg, þessi olía er keypt í IKEA, þar í pizzudeildinni 🙂 er búin að kaupa sjálf og ætla að gera svona.
ég væri alveg til í að fá uppskriftina af brauðstanarolíunni ef þið eruð með hana. bý erlendis og get þvi ekki skruppið í IKEA 🙁
Ég er því miður ekki með uppskriftina af þessari olíu þar sem ég kaupi hana alltaf tilbúna í IKEA
þarf maður heilann svona olíudall í eina uppskrift eða dugar dollan í fleiri ?? 🙂
Olíudósin dugar að sjálfsögðu mun meira en í þetta eina skipti
Hvernig munduru slummpa á aðeins minni uppskrift af brauðstöngunum ,er þetta nefla ekki frekar stór uppskrift ? 🙂
Er ekki 20 – 30g af salti soldið mikið?
Gerði þessa uppskrift í gær og þetta var óætt þetta var svo salt. Spurning hvort að það sé einhver prentvilla í uppskriftinni …
Væri líka til í svona slump uppskrift af svona brauðstangaolíu þar sem ég bý líka erlendis. Þarf ekki að vera akkúrat 🙂