Hvað er jólalegra en Coca Cola lestin?
Það tók langan tíma (15 klukkustundir) að vinna kökuna en hún er gerð eftir ljósmynd sem við fundum á internetinu.
Kakan er búin til úr þremur ofnskúffum af súkkulaðiköku, smjörkrem er sett á milli og utan um kökuna sem síðan er hjúpuð með rauðum sykurmassa.
Skreytingar á kökunni:
Sykurmassinn er litaður með rauðum gel matarlit og fór slatti af matarlit í blönduna. Rauður er einn þeirra lita sem erfiðast er að ná sterkum og góðum.
Ljólaljós: Búin til úr örfínum perluborðum sem búnir eru til með sérstöku sílikonmóti. Borðarnir eru síðan litaðir með gulu starlight perludufti og límdir á kökuna með sykurmassalími.
Coca Cola merki: Prentaði út mynd af logoinu, klippti út og skar síðan með örfínum sykurmassahníf, stafirnir eru síðan litaðir með Comet white perludufti.
Grind framan á bílnum: Hvítur sykurmassi skorinn út. Ræmur settar þvert yfir með sykurmassalími. Grindin síðan lituð með silfurlituðu perludufti.
Ljós: Hvítur sykurmassi skorinn út, litaður silfurlitaður með perludufti og gulur með gulu perludufti.
Pústurör og handfang: Mótað úr hvítum sykurmassa og litað silfurlitað með perludufti. Tannstönglum er stungið í til að festa betur í kökunni.
Rúður, dekk og svartir b0rðar var búið til með tilbúnum svörtum sykurmassa.
Jólasveinarnir eru búnir til með sílikonmóti
Skref fyrir skref:
vá sæll hversu langan tíma tók þetta?
Vááá! Geðveikt flott!!
Rakel, það stendur uppi að það hafi tekið 15 klukkutíma 🙂