Það er alltaf gaman að skreyta og bera fram doppóttarkökur.
Súkkulaðikaka er skorin í tvennt og smjörkrem smurt á milli og utan um kökuna. Sykurmassi er flattur út og hann settur yfir kökuna. Kakan er skreytt með mismunandi hringjamótum. Þetta getur ekki klikkað!
Þessi kaka er æði! elska doppur hehe
Hvernig haldast doppurnar á ss þessar sem settar eru á hliðina.. tollir þetta bara við?? er að fara gera í fyrsta skiptið næstu helgi.. vantar smá tips;)
váá þessi kaka er æðisleg 😀 og hún er geggjuð í bæði í veislur og barna afmæli :Þ
Þessi kaka kemur mjög vel út og er mjög einföld hvað skreytingar varðar. Doppurnar eru festar með sykuramssalími: http://vefverslun.mommur.is/details/sykurmassal%C3%ADm?category_id=166 eða með örlitlu vatni sem er dumpað undir doppurnar.
Hæ við erum að fara að gera þessa köku fyrir veislu og okkur vantar aðeins meiri upplýsingar um uppskriftina smá hjálp 🙂 🙂
Sælar. Það má í raun nota hvaða uppskrift sem er. Bæði hægt að gera súkkulaðiköku með smjörkremi og svamptertubotn með rjóma og ávöxtum á milli.
Sykurmassinn er settur yfir kökuna og rauðu og grænu doppurnar skornar útmeð misstórum hringjum. Ef þig eigið ekki mót er hægt að kaupa þau í vefverslun okkar http://vefverslun.mommur.is/product/details/product_id/101
Einng hægt að nota það sem til er á heimilinu, krydd lok, glös tappa o.s.frv.
Uppskriftirnar eru allar hér á síðunni undir uppskriftir. http://mommur.is/?cat=115