Skoða

Flösku kökupinni

Því ekki að fanga nýju ári með flöskum í kökulíki?

Ég notaði Betty Crokcer silkimjúki kökupinnauppskrifitna mína en hún er alveg dásamleg, ekki bara á bragðið heldur koma pinnarnir vel út með henni.

Uppskriftin er einföld:

1 Betty Crocker Djöflaköku- eða súkkulaðikökumix

400 g súkklaðikrem frá Betty Crocker

Hvítir súkkulaðidropar frá Nóa Síríus

Aðferð

Bakið Betty Crocker blönduna samkvæmt leiðbeiningum. Þegar kakan er orðin köld er hún tekin í sundur og mulin niður í skál. Kreminu er síðan bætt saman við með gaffli. Besta útkoman verður þegar blandan er kramin í höndunum, nauðsynlegt að vera í hönskum. Blandan á að vera þannig að hún festist ekki við hendurnar og ekki of þurr.  Ef farið er nákvæmlega eftir uppskriftinni ætti hún að vera fullkomin.

 

Ég hjúpaði kökuflöskurnar með hvítu Nóa Síríus súkkulaði lét súkkulaðið storkna og spreyjaði síðan með grænu perluspreyi, algjör snilld og tekur enga stund. Silfurlitaðuðu hlutarnir eru málaðir þegar spreyið hefur þornað með perlumálningu (efni sem ég er orðin ástfangin af).  Tölustafirnir og svörtu línurnar eru litaðar með svörtum matartússlit.

Til að halda pinnunum og bera fram er hægt að nota frauðplatta eða sérstaka kökupinnahaldara

1 comment
Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Related Posts