Fótboltavöllur hefur lengi verið vinsæl kaka í barnaafmælið. Hún er bæði falleg og síðan er hún mjög auðveld í framkvæmd.
Bakið 1 ofnskúffu af súkkulaðiköku. Skerið í tvennt og setjið smjörkrem á milli og utan um kökuna. Grænn sykurmassi (1/2) er flattur út og settur utan um kökuna. Hvítu útlínurnar og grasið í kring er búið til með sykurmassabyssu. Fótboltamörkin og karlarnir fást í Húsasmiðjunni og Byggt og búið.