Skoða

Litað karamellupopp

Karamellupopp er skemmtileg hugmynd í hvers kyns veislu. Hægt að lita poppið í hvaða lit sem er.

Uppskrift:

Karamellupopp
1 skál popp (búið að poppa). Væri hægt að nota popp úr pokum.
1 ½ bolli sykur
½ bolli ljóst síróp
2 msk smjör
¼ tsk cream of tartar (gerir blönduna kremaðri)
¼ tsk vanilludropar
1 tsk matarsódi
Matarlitur (ca. 1/8 úr teskeið).

Aðferð:

Poppið poppkorn eða kaupið tilbúið í pokum. Setjið poppið í skál.
Bræðið smjörið á pönnu og bætið sykrinum, sírópi, cream of tartar og salti saman við. Hækkið hitann á miðlungshita og bíðið eftir að blandan fari að sjóða. Hrærið stöðugt í á meðan.  Um leið og blandan sýður er matarlitnum bætt saman við. Látið sjóða í 5 mínútur. Fjarlægið pönnuna frá hitanum og bætið vanilludropum og matarsóda varlega saman við. Hrærið í og hellið blöndunni síðan yfir poppið. Hrærið varlega í. Blandan er sett í ofnskúffu og hitað í 1 klst við 90°hita. Hrærið í blöndinni á 15 mínútna fresti.

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Related Posts