Skoða

Súkkulaðidraumur

Fyrir nokkru fór í í kaffiboð til vinkonu minnar og bauð upp þessa líka góðu súkkulaðiköku. Kakan hét Litla syndin ljúfa.

Kakan var eftirminnilega góð og fannst mér líka snilld að hún tekur enga stund og ef maður vill gera deigið daginn áður þá má geyma það í ísskáp og baka þegar hentar.

Ég ákvað að prófa mig áfram og skella í eina uppskrift. Notaði uppskriftina af Litlu syndinni ljúfu sem grunn og bætti aðeins við.

Uppskrift:

140 g 56% súkkulaði

140 g smjör

1 mars súkkulaðistykki

3 egg

2 eggjarauður

1 tsk vanilludropar

180 g flórsykur

80 g hveiti

Aðferð:

Súkkulaðið er brytjað niður ásamt smjöri og brætt við vægan hita. Eggin og eggjarauðurnar eru settar í skál og þeyttar vel, vanilludropum bætt saman við ásamt flórsykri og hveiti.  Súkkulaðiblöndunni er blandað saman við og hrært varlega saman við.  Sett í lítil eldföst mót og bakað við 210 gráður í 8-10 mínútur. Bökunartíminn fer allur eftir því hversu stór formin eru.  kakan á að vera mjög blaut.

 

 

2 comments
  1. Girnilegt eins og allt hjá ykkur.
    En hvar fékstu þessa flottu bolla? og má baka í þeim??
    Kveðja Inger

  2. Takk fyrir það!

    Man ekki hvað búiðin heitir sem ég fékk þessa bolla í. Eina sem ég veit er að búðin er staðsett í Smáralind rétt hjá Hagkaup.

Comments are closed.

Related Posts