Gögn:
- Myndir af ýmsum dýrum/stjörnum
Lýsing:
Þegar gestirnir mæta er mynd límd á bakið á þeim. Um leið er þeim sagt að það megi ekki segja hver öðrum hvað sé aftan á þeim. Þegar allir hafa mætt setjast allir niður í hring. Allir fá að spyrja hina spurningu. Svörin mega aðeins vera já eða nei. Haldið er áfram að spyrja þar til einhver hefur uppgötvað hver hann er.