Skoða

Snúðakaka

IMG_9341

Ilmurinn af nýbökuðum snúðum er lokkandi og freistast maður oftar en ekki til að næla sér í nokkra.  Það er gaman að breyta til   og setja snúðana saman í eldfast mót og hella glassúrnum síðan yfir snúðana. Dásamlega gott og ekki verra að drekka ískalda mjólk með.

IMG_9280

Mjög gott að hita mjólk og smjör saman, blanda síðan þurrgeri, sykri  og salti saman við.

IMG_9291

Algjör snilld að láta hrærivélina sjá um hnoðunina.

IMG_9290

Fínt að nýta tímann vel og gerra fyllinguna með deigið er að hefast.

IMG_9310

Silikon bökunarmotta hentar vel til að fletja deigið út og rúlla.

IMG_9315

Deigið er skorið í hæfilega þykka rúllur. Rúllunum er síðan raðað í smurt eldfast mót.  Passa að hafa pláss á milli því snúðarnir stækka mikið.

IMG_9320

IMG_9326

Snúðakaka

Snúðakaka

  • Prep Time: 50m
  • Cook Time: 25m
  • Total Time: 1h 15m
  • Serves: 10
  • Yield: 1 snúðakaka

Ingredients

Uppskrift

  • 300 ml mjólk
  • 80 g smjör
  • 2 1/2 tsk þurrger
  • 3/4 tsk salt
  • 1 stk egg
  • 100 g DanSukker sykur
  • 450 g Pillsbury hveiti

Fylling

  • 30 g smjör – brætt
  • 120 g DanSukker púðursykur
  • 2 tsk kanill

Glassúr

  • 200 g DanSukker flórsykur
  • 50 ml vatn - heitt
  • 80 g smjör
  • 2 msk DanSukker síróp
  • 2 tsk vanilludropar

Instructions

Aðferð:

  1. Mjólkin er hituð ásamt smjörinu, passa að hafa blönduna aðeins ylvolga. Þurrgeri er blandað saman við ásamt sykri og salti.
  2. Egginu er þá bætt saman viðog hrært vel saman við blönduna.
  3. Hveitið fer síðan smám saman út í .
  4. Deigið er hrært saman og síðan hnoðað. Mjög þægilegt að setja deigið í hrærivélaskál og láta hnoðarann hnoða deigið.
  5. Deigið er látið lyfta sér í ca. 40 mínútur.
  6. Á meðan deigið er að lyfta sér er kanifyllingin gerð tilbúin. Smjöriið er brætt og púðursykri og kanil blandað saman við.
  7. Deigð er flatt út þegar það hefur lyft sér og kanilfyllingin sett yfir.
  8. Þá er deiginu rúllað upp og skornir hæflilega þykkir snúða. Snúðarnir eru settir í smurt eldfast mót og bakaðir við 180°C hita í um 25-30 mínútur.
  9. Glassúrinn er gerður á meðan snúðakakan er að bakast.
  10. Þegar snúðakakan er bökuð er glassúrinn settur yfir.

IMG_9341

 

Related Posts