Þeir sem eiga lítil kríli þekkja vel Tínkí-vínki, Dipsý, Lala og Pó. Litríkir og skemmtilegir hafa þeir frætt og skemmt ungviði þessa lands. Væri ekki gaman að undirbúa Stubbaþema fyrir litla krílið þitt?
Tvær ofnskúffur af súkkulaðiköku er notaðar í þessa hugmynd. Prentið út mynd af stubbunum og stækkið upp á smjörpappír. Mótin eru klipp út og kakan skorin eftir þeim. Smjörkrem er sett utan um kökurnar. Maginn og andlitið er hækkað upp með afgangs kökubútum. Sykurmassi er settur yfir kökurnar og þær skreyttar eins og myndirnar sína. Til að fá skjáinn á maganum til að glitra er silfurduft notað.
Frábær hugmynd,rosalega flott hjá ykkur.
Kveðja Hulda
hvernig krem eruð þið með undir sykurmassanum ? 🙂
sýnist þau vera með smjörkrem 🙂